Ísak Harðarson látinn

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins

Ísak Harðarson skáld lést á krabbameinsdeild Landspítalans að morgni föstudagsins 12. maí eftir stutt veikindi. Ísak fæddist í Reykjavík þann 11. ágúst árið 1956. Hann lauk stúdentsprófi 1977 og stundaði síðan nám við Kennaraháskóla Íslands auk íslenskunáms við Háskóla Íslands. Ísak sendi frá sér sína fyrstu bók, ljóðabókina ,,Þriggja orða nafn”, árið 1982 og síðan hefur hann gefið út fjölda ljóðabóka, smásagnasöfn, skáldsögu og endurminningabók auk þess sem hann var mikilvirkur þýðandi. Ísak hlaut Rithöfundaverðlaun Ríkisútvarpsins árið 1994 og hann var tilnefndur til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs árið 2011 fyrir bók sína ,,Rennur upp um nótt”. Ísak var þekktur fyrir sterkt og frumlegt myndmál í ljóðum sínum og sterkan trúarþráð en hann virtist ofurnæmur fyrir straumum samtímans. Þótt viðfangsefnin hafi oft verið alvarleg og myrk þá voru verk hans oftar en ekki full af hugmyndaauðgi, leikgleði og húmor. Ísak lætur eftir sig tvær dætur sem hann eignaðist með Ólöfu Garðarsdóttur.

Forlagið sendir ættingjum og vinum innilegar samúðarkveðjur.

Stokkseyri – tónverk Hróðmars Inga Sigurbjörnssonar við ljóð Ísaks Harðarsonar

 

 

Steinsnar

Elliheimilið og fjósið
– bara steinsnar
á milli

Kýrnar jórtrandi
á básunum og gamla fólkið
í minningunum

Bráðum
verður þeim hleypt
út í ljósið!

Bara steinsnar á milli

 

(úr Stokkseyri 1994)

 

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd