Í Grafningnum með Gerði

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins
Gerður Kristný

Ísinn í sjoppunni við Valhöll hlaut að bragðast guðdómlega. Þar sem fólki var áður drekkt eins og kettlingum í poka eða það sundurlimað fyrir að stela tvinna var nú boðið upp á pönnukökur með þeyttum rjóma. Síðan var hægt að kasta peningi ofan í gjá og óska sér heppni og hamingju.

Það telst ávallt til tíðinda þegar Gerður Kristný sendir frá sér bók. Hestvík er þriðja skáldsaga hennar fyrir fullorðna en þegar allt er talið hefur hún sent frá sér á þriðja tug bóka.

Hestvík er dulúðug og spennuþrungin saga sem gerist um ágústnótt árið 2009. Það er liðið á sumar og lyngilmurinn í Grafningnum fyllir vitin. Frá sumarbústöðunum sjást Nesjaey og Sandey stinga kryppum sínum upp úr vatninu og stundum siglir þar bátur. Fólk er hingað komið til að vera í friði með minningar sínar og leyndarmál. Kvöldin eru orðin dimm og erfitt að finna þá sem týnast.

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd