Hverrar krónu virði!

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins

Rithöfundurinn og bloggarinn Ágúst Borgþór fagnar nýju hefti TMM á vefstað sínum á DV.is og hrósar forvitnilegu efni þess. Hann skrifar meðal annars: „Það er eitt sem gerir Ólaf Ragnar Grímsson alveg einstakan: Hann er líklega eini fyrrverandi þjóðhöfðingi heims sem er ennþá í embætti.  Þessa hugmynd má raunar lesa á milli línanna í mjög samtímalegum ljóðabálki eftir Anton Helga Jónsson í nýjasta tímariti TMM. Þar er altént orðalagið „forsetinn fyrrverandi“ á einum stað. Mikið af forvitnilegu efni í heftinu, m.a. gerir Hallgrímur Helgason grein fyrir Baugspennastimpli sínum, Guðni Elísson dregur þá ályktun af framtíðarskýrslu Viðskiptaráðs frá 2006 að hér hefði þjóðfélaginu öllu verið rústað ef bankarnir hefðu ekki hrunið haustið 2008; árið 2015 hefði m.a. verið búið að rústa menntakerfinu og tæma lífeyrissjóðina. Ég á að hluta ólesið Krataávarpið eftir Stefán Snævarr en þar ber hann meðal annars saman árangur af annars vegar óheftri frjálshyggju og hins vegar blönduðu hagkerfi víða um heim.“

Hann klikkir síðan út með því að hvetja landslýð til að kaupa sér eintak því það sé hverrar krónu virði.

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd