Hvernig væri lífið ef þú ættir engar minningar?

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins
S J Watson

Á föstudag kemur út æsispennandi saga, Áður en ég sofna, eftir hinn breska S.J. Watson. Höfundurinn sló rækilega í gegn með þessari mögnuðu frumraun sem unnið hefur til ýmissa verðlauna, verið þýdd á yfir þrjátíu tungumál og setið á metsölulistum austan hafs og vestan. Kvikmyndarétturinn var fljótlega seldur til Ridley Scott og verður myndin frumsýnd á næsta ári. Það eru stórstjörnurnar Nicole Kidman og Colin Firth sem fara með aðalhlutverkin. Bókin hlaut afar lofsamlega dóma hvar sem hún kom út og þrátt fyrir að bókin komi ekki formlega út fyrr en á föstudag hefur Kolbrún Bergþórsdóttir þegar fjallað um bókina í Morgunblaðinu þar sem hún segir hana vera bæði snjalla og hörkuspennandi og ráðleggur spennufíklum að láta bókina ekki framhjá sér fara.

Sagan segir frá Christine sem þarf á hverjum morgni að kynnast öllu upp á nýtt: Hún vaknar í ókunnugu húsi, við hlið ókunnugs manns, og þegar hún lítur í spegil mætir henni framandi sjón. Hún veit ekki hver hún er; hún man ekki neitt. Nætursvefninn rænir hana öllum minningum. Minnisleysið gerir hana berskjaldaða gagnvart misnotkun og lygum og smám saman verður ljóst að maðurinn sem vaknar með henni og útskýrir stöðuna dag eftir dag – sá sem hún treystir á – segir ekki allan sannleikann.

Þeir sem geta ómögulega beðið föstudagsins eiga þess kost að demba sér strax í lesturinn því bókin er þegar komin út á rafbókaformi.

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd