Það eru ekki allir á eitt sáttir með Icesave, forsetann og stjórnlagaþingið. Við minnum á þarft rit sem gott er að hafa við höndina þegar rætt er eða kosið um framtíð þjóðarinnar, sjálfa stjórnarskrána. Þessi handhæga litla bók geymir grundvallarlög íslenska ríkisins og hvort sem þú ætlar þér að sitja heima eða stökkva á kjörstað er vissara að glugga aðeins í hana. Hér er stjórnarskráin prentuð í nýjustu gerð sinni en árið 1995 var mannréttindakafli hennar og fleira endurskoðað og kjördæmaskipan árið 1999.
Hvað stendur í 26. greininni?
- Höfundur: Ritstjórn Forlagsins





