Houellebecq í heimsókn

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins
Houellbecq

Hinn umdeildi franski rithöfundur Michel Houellebecq verður gestur Listahátíðar í vor. Heimsókn hans er skipulögð í tilefni af 100 ára afmæli Alliance française á Íslandi. Houellebecq er afar fjölhæfur höfundur og hefur sent frá sér fjölmargar skáldsögur, ljóð og ritgerðir en bækur hans hafa verið þýddar á um 40 tungumál.

Nýjasta skáldsaga hans Kortið og landsvæðið kom út september í fyrra. Bókin hlaut einróma lof og fyrir hana hlaut höfundurinn virtustu bókmenntaverðlaun Frakka, Prix Goncourt.  Houellebecq þykir hafa komið með nýjan og ferskan tón inn í franskar samtímabókmenntir og er hann nú sá franski samtímahöfundur sem langmest er þýddur á erlend tungumál. Tvær skáldsagna hans, Öreindirnar og Áform, hafa komið út í íslenskri þýðingu Friðriks Rafnssonar.

Dagskrá í heiðurs Houellebecq  verður haldin í Norræna húsinu þann 25. maí næstkomandi, en þar mun hann ræða um verk sín við Friðrik Rafnsson, þýðanda og Oddnýju Eir Ævarsdóttur, heimspeking og rithöfund, og svarar loks spurningum  lesenda.

Í tilefni af heimsókninni býður Endurmenntun HÍ upp á snarpt námskeið um höfundinn og verk hans.

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd