Hörkuspennandi bók á 25 ára rithöfundaafmæli

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins
Þorgrímur Þráinsson

Í dag dreifum við glænýrri bók Þorgríms Þráinssonar, Hjálp, en bókin markar sömuleiðis 25 ára rithöfundaafmæli þessa sívinsæla höfundar!

Í Hjálp aka fimm unglingar inn í myrkrið með gps-hnit og óljósa leiðarlýsingu sem á að vísa þeim á heita laug úti í óbyggðum. Tunglið breiðir drungalega birtu yfir landslagið og engu þeirra er alveg rótt þegar þau stíga út úr bílnum. Þó hafa þau ekki hugmynd um hvaða ógnir bíða þeirra:

„„Hringið í 112 eða … eða lögguna … pabba … eða bara einhvern … HJÁLP,“ öskraði Matthildur óðamála og átti í mestu vandræðum með að koma orðum að því sem þaut á ógnarhraða í gegnum hugann. Hún greip í Neptúnus en hann sýndi engin viðbrögð. Kesang sat sem fastast með krosslagða handleggi og ógnvekjandi augnaráð en bæði Olga og Smári seildust eftir símunum sínum. Móey Rögn hafði losað öryggisbeltið og lagst á gólfið, skjálfandi.“

Hörkuspennandi sem enginn aðdáandi bóka Þorgríms ætti að láta fram hjá sér fara!




Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd