HHhH fær frábærar viðtökur

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins
HHhH

Ný söguleg skáldsaga Laurents Binets, HHhH, var tekin fyrir í Kiljunni á dögunum og voru gagnrýnendur á einu máli um ágæti hennar.

Þau Kolbrún Bergþórsdóttir og Sigurður G. Valgeirsson voru sammála um að ótrúlegt væri að um frumraun höfundar væri að ræða, slík væri ástríðan og eljan sem lögð var í bókina. Eins voru þau sammála um að efniviðurinn væri í senn hrikalegur og magnaður en bókin segir frá Reinhard Heydrich sem Egill Helgason kallar „eitt af hreinræktuðustu illmennum sögunnar“, hvernig tveir andófsmenn í Prag reyndu að ráða hann af dögum og hræðilegum hefndum Þriðja ríkisins. Mikið hefur verið talað um óvenjulega frásagnaraðferð sem Binets beitir í bókinni en þar fá lesendur að fylgjast með honum kljást við form sögulegu skáldsögunnar og hvernig efnið og heimildasöfnunin hefur áhrif á hann persónulega sem Sigurður telur einn af helstu kostum bókarinnar: „…hann leikur við mann í gegnum efnið og segir jafnframt frá hræðilegum atburðum og miklum hetjuskap af gríðarlegri íþrótt.“

Kolbrún var einnig mjög jákvæð í garð bókarinnar og sagði meðal annars: „Það er sérstök upplifun að lesa þessa bók … Hann er tilfinningaríkur, lifir sig inn í efnið og ég held að allir lesendur geri það líka … Það eru mjög margir sem hafa áhuga á seinni heimstyrjöldinni og þeir verða að lesa þessa bók. Hún situr í manni … Þetta er algjörlega mögnuð bók. Við eigum eftir að fá margar þýddar bækur á árinu en þessi er ein af þeim bestu.“

HHhH situr nú í 2. sæti metsölulista Eymundsson og ef marka má dómana kemur hún til með að verma efstu sæti listan fram eftir vori.

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd