Heppnir krakkar!

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins
Gunnar Helgason

Gunnar Helgason mætti á skrifstofu Forlagsins í bítið í dag þrátt fyrir aftakaveður til að draga tíu heppna krakka úr hópi þeirra sem sendu inn svar við getrauninni í bókinni hans Víti í Vestmannaeyjum. Eftirfarandi nöfn komu úr körfunni og þá er ljóst hvaða lukkunnar pamfílar fá eintak af nýju bókinni hans Gunna, Aukaspyrnu á Akureyri, sem er nýkomin út:


Einar Páll Þórðarson, 112 Reykjavík
Einar Sæþór Ólason, 230 Reykjanesbæ
Guðný Rún Ellertsdóttir, 603 Akureyri
Gunnar Sölvi Guðmundsson, 203 Kópavogi
Helga Klemenzdóttir, 603 Akureyri
Jenný Geirdal Kjartansdóttir, 240 Grindavík
Katla Margrét Aradóttir, 210 Garðabær
Máni Mar Steinbjörnsson, 220 Hafnarfirði
Pétur Steinn Atlason, 203 Kópavogur
Vala Rún Stefánsdóttir, 560 Varmahlíð

Vinningshafarnir fá bókina senda heim til sín um leið og veðrinu slotar.

Forlagið og Gunni óska þeim heppnu til hamingju og vona að þeir njóti bókarinnar.


Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd