Skáldsagan Sendiherrann eftir Braga Ólafsson, sem var tilnefnd til íslensku bókmenntaverðlaunanna þegar hún kom fyrst út 2006, var gefin út í Bandaríkjunum og Bretlandi í haust og hefur fengið prýðilegar móttökur.
Olive Mullet hjá NewPages Book Reviews segir: „Þessi skemmtilega, næma, læsilega og raunsæja skáldsaga fjallar ekki aðeins um skáldskap heldur birtir okkur mynd af sérvitrum samtímamanni sem týnist í tilraun til að finna sjálfan sig. Sögubyggingin er aðdáunarverð en sagan er líka spennandi eins og reyfari.” Adrian Turpin hjá Financial Times endar stutta umsögn sína á þessum orðum: „Einstaklega skondin gamansaga sem stundum minnir á lágstemmda norræna stælingu á ensku háskólasögunni: heillandi, fyndin og skrýtin í jafnstórum skömmtum.”
Larissa Kyzer hjá The Second Pass segir: „Bragi er meistari þeirrar listar að bregða ekki svip þegar hann ærslast mest, þegar hann lætur einfaldar aðstæður verða skyndilega furðulega flóknar. Þetta heppnaðist til dæmis stórvel í Gæludýrunum … Kannski er frjóasta þema Sendiherrans spurningin um það hver á gott sköpunarverk, góða hugmynd, listrænt verk eða einstaklega vel sagða setningu. En sagan hefur engan áhuga á að komast að niðurstöðu um ritstuld eða nein önnur sérkennileg óhöpp og slys Sturlu Jóns heldur nýtur hún ferðarinnar og býður upp á uppgötvanafjöld og tvíræðan húmor á leiðinni.”
Og Sam Munson endar skínandi góðan dóm sinn í The National á orðunum: „Lukkuleg er sú bókmenntaþjóð sem á svo sannfærandi erindreka.“





