Hátíðarútgáfa af sígildri bók

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins
Jólin koma - hátíðarútgáfa

Jólin koma – kverið með jólasveinavísunum hans Jóhannesar úr Kötlum prýtt teikningum Tryggva Magnússonar – þekkja allir. Hún kom fyrst út fyrir áttatíu árum og hefur frá upphafi verið ómissandi hluti af jólahaldi landsmanna. Í umfjöllun um bókina í barnablaðinu Sunnu haustið 1932 segir:  „„Jólin koma“ heitir bók, sem er að koma út núna fyrir jólin. Það er ein allra prýðilegasta barnabók, sem íslenzk börn eiga völ á, enda hafa tveir kunnir og snjallir listamenn lagt saman að gera hana úr garði … Sunna vonar, að mörg börn njóti þeirrar gleði, að fá hana í jólagjöf.“

Sunnu varð heldur betur að ósk sinni því óhætt er að fullyrða að Jólin koma er ein söluhæsta bók sem út hefur komið á íslensku. Í tilefni af áttatíu ára útgáfuafmæli hennar kemur hún nú út í sérstakri hátíðarútgáfu. Fyrir hana voru teikningar Tryggva Magnússonar myndaðar að nýju og hafa aldrei verið prentaðar jafnskýrt og nú. Einnig er hún í örlítið stærra broti en áður og fallega innbundin. Hátíðarútgáfan er 27. prentun af vísunum góðu sem hafa komið Íslendingum í jólaskap í áttatíu ár.

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd