Hallgrímur á Amazon

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins
hallgrimur og hitman

Bókin 10 ráð til að hætta að drepa fólk og byrja að vaska upp eftir Hallgrím Helgason hefur verið gefin út af Amazon og fæst nú á sölusíðunni Amazon.com. Enska útgáfan er þar fáanleg í kilju og á rafrænu kyndilformi eins og má sjá hér.

Bókin ber enska titilinn The hitman’s guide to housecleaning og hefur nú þegar fengið frábæra dóma á sölusíðunni. Hallgrímur er lofaður sem beittur og írónískur höfundur sem með orðsnilld sinni heldur lesandanum föstum við bókina þar til henni er lokið. Tungutaki og ritstíl Hallgríms er hrósað í hástert en Hallgrímur skrifaðu bókina fyrst á ensku og síðan á íslensku. Þetta þýðir að hinn enskumælandi heimur fær loksins að kynnast snjöllum og stórskemmtilegum stíl Hallgríms. Húrra fyrir því!


Hér má sjá brot af dómum á ensku um bókina:

“A sensational book. Hallgrimur Helgason’s brain is like this amazing app that morphs the English language into gorgeously blunt new forms. It delivers surprise after surprise and makes you feel good about books again. I can’t recommend it enough.” –Douglas Coupland, author of Generation X

“If you read this I predict [Helgason]’ll be in your mind to stay.” — DBC Pierre, Man Booker Prize-winning author of Vernon God Little

“[Helgason is] uproarious, sharp, and outrageously funny.”– Kirkus Reviews

“[Helgason’s writing is] intelligent, unexpected and beguiling.” –-The Guardian

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd