Árið 2002 flutti Hallberg aftur til Íslands og skrifaði umsagnir um íslenskar bækur fyrir World Literature Today og var einn af ráðgjöfum þess um val bóka til umsagnar. Hallberg stundaði jafnframt þýðingarstörf, bæði af og á íslensku, allt frá því hann flutti utan. Hallberg skrifaði margar greinar, langar og stuttar, á ensku um íslensk og norræn málefni og einnig fjölda greina um bókmenntaleg og sagnfræðileg efni.
Á Íslandi hafa komið út fimmtán ljóðabækur eftir Hallberg og tvö smásagnasöfn; auk þess ritstýrði hann An Anthology of Scandinavian Literature (1966) og Icelandic Folk and Fairy Tales (1987). Þýðingar hans á íslensku losa fimmta tuginn.
Á áttræðisafmæli Hallbergs kom út ljóðasafn hans Á barmi næturinnar.





