Guðrún Helgadóttir er borgarlistamaður Reykjavíkur

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins
Guðrún Helgadóttir

Hin eilíflega ástsæla Guðrún Helgadóttir var um helgina valin borgarlistamaður Reykjavíkur. Hún veitti viðurkenningunni móttöku í Höfða á sjálfan þjóðhátíðardaginn við hátíðlega athöfn.

Guðrún er einn vinsælasti og afkastamesti barnabókahöfundur okkar Íslendinga og hefur hlotið fjölmörg verðlaun fyrir verk sín. Árið 1992 hlaut hún Norrænu barnabókaverðlaunin fyrir bók sína Undan illgresinu, árið 1994 Barnabókaverðlaun skólamálaráðs Reykjavíkur fyrir Litlu greyin. Árið 2005 fékk hún Bókaverðlaun barnanna fyrir bókina Öðruvísi fjölskylda og síðar sama ár Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar fyrir framlag sitt til íslenskrar tungu.

Þá eru ónefndar hennar allra vinsælustu bækur um tvíburabræðurna Jón Odd og Jón Bjarna sem komu út á árunum 1974-1980.

Við óskum Guðrúnu innilega til hamingju með heiðurinn en að þessu tilefni höfum við tekið saman allar bækur Guðrúnar sem enn eru til í prenti og sett í sérstakan flokk hér í vefversluninni.

Flokkinn má skoða HÉR.

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd