Guðbergur níræður!

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins

Einn fremsti rithöfundur þjóðarinnar, stílsnillingurinn Guðbergur Bergsson, er níræður, en hann fæddist í Grindavík þann 16. október 1932. Guðbergur er einn áhrifamesti höfundur okkar á síðari hluta 20. aldar – og raunar fram á þennan dag. Fyrsta bók hans, Músin sem læðist, kom út árið 1961 og á síðasta ári  sendi hann frá sér smásagnasafnið Hálfgerðar lygasögur með heilagan sannleika í bland undir merkjum JPV útgáfu.

Guðbergur hefur hlotið margvíslegar viðurkenningar fyrir ritstörf sín, m.a. bókmenntaverðlaun dagblaðanna 1967, bókmenntaverðlaun DV 1983, Orðu Spánarkonungs (Riddarakross afreksorðunnar), Íslensku bókmenntaverðlaunin 1992 og 1998 og tilnefningu til sömu verðlauna 1993 og 1997, og Norrænu bókmenntaverðlaun Sænsku akademíunnar hlaut hann árið 2004. Árið 2006 var Guðbergur tilnefndur til hinna virtu ítölsku Noninu-verðlauna fyrir skáldsöguna Svaninn. Bækur hans, einkum Svanurinn, hafa notið mikilla vinsælda víða erlendis og verið þýddar á fjölmörg tungumál.

Forlagið óskar Guðbergi hjartanlega til hamingju með merkisafmælið!

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd