Guðmundur Andri fær frábæra dóma í dönsku pressunni

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins
Guðmundur Andri Thorsson

Bókmenntarýnir Jyllandsposten, Henriette Bacher Lind, skrifaði lofsamlega gagnrýni um bók Guðmundar Andra, Valeyrarvalsinn á  menningarsíðum blaðsins  um helgina.

Bókin hlaut heilar fimm stjörnur og umsögnina, með hennar eigin orðum; „… for pokker, hvor kan han skrive,“  sem á ástkæra ylhýra myndi útleggjast eitthvað á þessa leið: „…mikið andskoti getur hann skrifað!“

Valeyrarvalsinn er hrífandi og margradda skáldverk þar sem sextán sögur fléttast saman, kallast á, botna hver aðra og skarast margvíslega enda gerast þær allar á sömu tveimur mínútunum í litlu þorpi. Þetta eru sögur um mannfólkið og það sem kemur fyrir það, sögur um ástir og afglöp og fjölskyldutengsl og öll leyndarmálin, alkunn og djúpt grafin. Persónur, atvik og kenndir kvikna til lífs og tónlistin umvefur allt í ómótstæðilegum texta Guðmundar Andra Thorssonar.

*****

Jyllandsposten/Henriette Bacher Lind

*****

Ekstrabladet/George Hilton

****

B.T

 

Valeyrarvalsinn var tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs fyrir árið 2012.

Bókin kom út í danskri þýðingu Erik Skyum Nielsen hjá forlaginu Bazer & co. og er hún væntanleg á þýsku innan tíðar og svo á norsku og frönsku árið 2015.

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd