Stóra garðabókin er sannkallað alfræðirit fyrir þá sem vilja sinna garðinum sínum. Í bókinni eru gefnar nýjar hugmyndir, bent á fjölda möguleika, réttu handtökin kennd og gefin góð ráð. Bókin er fyrir alla sem sem vilja vera sérfræðingar í eigin garði, jafnt byrjendur sem lengra komna.
Ræktum sjálf, handhæg og einföld bók fyrir alla garðræktendur – bæði fyrir byrjendur eða lengra komna. Í bókinni eru upplýsingar um hvenær og hvernig best er að sá eða planta – bæði grænmeti, kryddjurtum, ávöxtum og berjum. Það hljómar ef til vill ótrúlega en með hjálp þessarar bóka getur þú t.d. ræktað epli, plómur, kamillu, stikilsber og sellerí í garðinum þínum. Inngang bókarinnar skrifar Björn Gunnlaugsson garðyrkjufræðingur en hann staðfærði einnig bókina.
Litríkar lykkjur úr garðinum eftir Arne og Carlos er mjög skemmtileg hannyrðabók, í henni er heklað, prjónað og saumað út. Í bókinni bregða hönnuðirnir Arne og Carlos á leik með fjölmörg litrík og skemmtileg verkefni þar sem garðuinn þeirra veitir þeim innblástur. Blóm og fiðrildi breytast í nálapúða, hitaplatta, sessur og margskonar aðra heklaða eða prjónaða smáhluti. Litríkar lykkjur úr garðinum er einstaklega lífleg og falleg bók fyrir hannyrðafólk og aðra fagurkera. Verkefnin eru fjölbreytt – bæði stór og smá – og henta byrjendum jafnt sem lengra komnum.
Algjörlega ómissandi bók fyrir þá sem vilja hekla, prjóna og sauma.”
Kolbrún Bergþórsdóttir / Morgunblaðið





