Glæsilegir ritdómar í Ritinu

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins
Ritið

Í nýjasta hefti Ritsins, tímarits Hugvísindastofnunar Háskóla Íslands, er fjallað um tvær nýlegar bækur, Himininn yfir Þingvöllum eftir Steinar Braga og Skaparann eftir Guðrúnu Evu Mínervudóttur. Þetta eru einstaklega athyglisverðar greinar sem ástæða er til að benda áhugasömum bókmenntalesendum á.
Það er Björn Þór Vilhjálmsson sem gerir langa og ítarlega úttekt á þrem nóvellum Steinars Braga undir heitinu “Skrif við núllpunkt – um steingervinga, sæborgir og endalok” og opnar lesanda nýstárlega sýn ofan í ómælisdjúp sagnanna.  Þær fjalla allar um dauðann og Björn Þór spyr hvort dauðahvötin sem rekur þær áfram sé “táknræn hliðstæða þeirrar stjórnlausu neyslu sem stefnir í að tæma auðlindir jarðar? Ef til vill má lesa umgengni okkar við umhverfið í samtímanum sem birtingarmynd dauðahvatarinnar, og ómeðvitaða þrá eftir endalokum.”
Sigrún Margrét Guðmundsdóttir skrifar um bók Guðrúnar Evu og dregur fram athyglisverðan skyldleika milli kynlífsdúkkunnar og skáldsögunnar í greininni “Hvít eins og frauðplast”: “Í sögunni eru dregnar upp þversagnirnar sem listamaðurinn / dúkkusmiðurinn neyðist til að búa við; annars vegar leitast hann við að skapa verk sem skiptir máli, hins vegar þarf hann að selja það. En þversagnirnar sýna lesendum ekki síður fram á að jafnvel markaðsvaran getur hróflað við ímyndunarafli þess sem tekur við henni. Og nýtt sköpunarverk verður til.”

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd