Fyrr í vikunni kom út ný skáldsaga eftir hinn ástsæla Árna Þórarinsson, Glæpurinn – Ástarsaga. Í verkinu kveður við nýjan tón á höfundaferli Árna, sem hingað til hefur verið þekktastur fyrir glæpasögur sínar, en sagan er átakanleg samtímaástarsaga um skugghliðar mannlífsins. Gagnrýnendum Kiljunnar þótti mikið til bókarinnar koma og sammæltust um að þarna væri um frábært verk að ræða, sagan risti djúpt og væri þarft innlegg í umræðu dagsins í dag. Eftirfarandi tilvitnanir tala sínu máli:
„Prýðileg og óvænt saga hjá Árna sem hlýtur að hreyfa við öllum lesendum.“
Kolbrún Bergþórsdóttir / Kiljan
„Spennandi alveg frá fyrstu síðu … þétt verk, virkilega vel heppnað.“
Sigurður G. Valgeirsson / Kiljan
Eins og Kolbrún benti sömuleiðis á er nokkuð erfitt fyrir gagnrýnendur að tala um bókina án þess að spilla söguþræðingum fyrir lesendum. Við mælum því með að þið, kæru lesendur, verðið ykkur úti um eintak sem allra fyrst og kynnið ykkur þessa frábæru bók.





