Gettu hvað ég heiti

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins
Gilitrutt og hrafninn - útgáfuboð

Á fimmtudag er útgáfu ævintýrisins um Gilitrutt fagnað í Eymundsson Austurstræti. Bókin er unnin út frá  verðlaunasýningu brúðuleikarans Bernds Ogrodnik sem sett verður upp í Þjóðleikhúsinu næstkomandi laugardag. Þar fléttar hann skemmtilega inn í söguna öðru þjóðsagnaminni – sögninni um hrafninn sem gefið er að éta og launar greiðann vel.

Flestir þekkja söguna um Gilitrutt. Jón og Freyja eru nýgift og elska hvort annað af öllu hjarta. Jón er duglegur bóndi sem vinnur frá morgni til kvölds en Freyju finnst best að kúra inni í bæ og gera sem minnst. Þegar gömul kona býðst til þess að vinna fyrir hana ull í vaðmál verður hún himinsæl. Að launum þarf bóndakona einungis að nefna nafn kerlingar en þegar á hólminn er komið er það hægara sagt en gert. Sem betur fer man Jón alltaf eftir því að gefa hrafninum og það borgar sig heldur betur.

Sagan af Gilitrutt birtist fyrst í Þjóðsögum Jóns Árnasonar. Hér birtist hún með glæsilegum ljósmyndum úr brúðusýningu Bernds Ogrodnik sem valin var besta barnasýningin á Grímuverðlaunahátíðinni 2011. Myndvinnslu og bókarhönnun annaðist Kristín María Ingimarsdóttir. Silja Aðalsteinsdóttir bjó íslenska textann til prentunar.

Á myndinni eru brúðugerðarmaðurinn og höfundurinn Bernd Ogrodnik, Eggert Þór Jónsson sem tók ljósmyndirnar af leikmynd og leikbrúðum sýningarinnar fyrir bókina og Kristín María Ingimarsdóttir sem annaðist myndvinnslu og hönnun.

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd