„gengur ykkur allt að bestu vonum“

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins
Frú Vigdís Finnbogadóttir og Þórarinn Eldjárn

Þórarinn Eldjárn hlaut í gær Sögusteininn – bókmenntaverðlaun IBBY á Íslandi. Í niðurlagi greinargerðar dómnefndar segir: „Enginn verðskuldar betur nafnbótina Listaskáld barnanna en Þórarinn Eldjárn og það er okkur mikill heiður og gleði að veita honum Sögusteininn fyrir árið 2013.“

Frú Vigdís Finnbogadóttir afhenti Þórarni verðlaunin og gerði það í nafni afa og amma sem njóta þess að lesa barnaljóð Þórarins fyrir barnabörnin. Kynnir samkomunnar,  Arndís Þórarinsdóttir formaður IBBY á Íslandi, var einnig persónuleg þegar hún talaði til Þórarins og sagði að foreldri leikskólabarns sem þyrfti að hlusta á sama málþroskaefnið aftur og aftur þakkaði það innilega að vísurnar þar væru eftir jafnlipurt og skemmtilegt skáld og Þórarin Eldjárn. Sjálfur þakkaði Þórarinn fyrir sig með ljóði úr bók sinni Grannmeti og átvextir:


Stafkrókur í orði á síðu í bók á borði

Inni á miðju bókasafni er borð
og bók á því, í henni miðri er síða.
Mitt á þeirri síðu er óþekkt orð,
í orðinu miðju stafur til að þýða.

Ef af stafnum þeim í þessu orði
á þeirri síðu í nefndri bók
tekst ykkur að þýða á þessu borði
í þessu safni jafnvel minnsta krók
gengur ykkur allt að bestu vonum.

Um að gera að byrja að leita að honum.


Verðlaunin eru 500.000 krónur, auk verðlaunagrips til eignar, en þau eru veitt rithöfundi, myndlistarmanni eða þýðanda sem með höfundarverki sínu hefur auðgað íslenskar barnabókmenntir. Í dómnefnd að þessu sinni sátu Brynja Baldursdóttir, íslenskufræðingur og kennari, Dagný Kristjánsdóttir, prófessor og Ragnheiður Gestsdóttir, rithöfundur og myndlistarmaður.

Sögusteinn var fyrst afhentur árið 2007. Áður hafa Sigrún Eldjárn, Kristín Steinsdóttir, Kristín Helga Gunnarsdóttir og Ragnheiður Gestsdóttir fengið Sögustein IBBY.

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd