Á vefverslunarsíðu dönsku bókaútgáfunnar Gyldendahl var efnt til kosninga á bestu bók ársins. Fjölmargir gestir síðunnar kusu sína eftirlætis bók, bæði danskar sem og þýddar bækur. Það kom í ljós að Danir hafa sama smekk á bókmenntum og Íslendingar því að hin gífurvinsæla bók Gamlinginn sem skreið út um gluggann og hvarf eftir Svíann Jonas Jonasson var kosin besta bók ársins.
Gamlinginn vann yfirburðasigur í kosningunni og hlaut þrisvar sinnum fleiri atkvæði en bókin sem var í öðru sæti. Hér má sjá úrslit kosninganna.





