Fyrir alla þá sem njóta af öllu hjarta

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins
Freyja Dís

Einu sinni var stelpa sem hét Freyja Dís og vildi BARA dansa og dansa.

Nema þegar aðrir sáu til. Þá fóru hnén að skjálfa og maginn í hnút.

Freyja Dís… er falleg og skemmtileg saga sem kennir okkur að fylgja hjartanu. Birgitta Sif hefur áður notið mikillar velgengni fyrir fyrstu bók sína Ólíver sem, eins og Freyja Dís, kom fyrst út á ensku. Báðar hafa hlotið afar lofsamlega dóma hjá ýmsum dagblöðum erlendis, s.s. The New York Times:

„Sif’s story, sweet but not saccharine, is written in tuneful prose, but I was even more charmed by her cleverly detailed pencil drawings. Colored digitally in rich greens, reds, browns and blues, they’re simultaneously handsome and adorable.“

Freyja Dís sem vildi BARA dansa og dansa er fyrir alla þá sem njóta af öllu hjarta.

Um Ólíver:
*****
„… Hér er á ferðinni hrífandi bók sem er, líkt og söguhetjur hennar, alveg sérstök.“
Silja Björk Huldudóttir / Morgunblaðið

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd