„Fullkomin útfærsla á skáldsögunni“

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins
Atli Rafn Sigurðarson í Eglum Alheimsins í Þjóðleikhúsinu

Á laugardagskvöldið var ný leikgerð af Englum alheimsins eftir Einar Má Guðmundsson frumsýnd á stóra sviði Þjóðleikhússins við gífurlega góðar undirtektir og standandi lófatak. Yfirleitt eru frumsýningargestir í þessu musteri leiklistarinnar ekki útausandi á slíka áberandi kæti en svo vel heppnuð var uppsetning Þorleifs Arnarssonar á þessu eftirlætisskáldverki Íslendinga að þeir gátu ekki hamið sig. Höfundur skáldsögunnar var líka kallaður á svið og var innilega fagnað.

Í vefútgáfu Fréttablaðsins í dag má lesa glæsilegan fimm stjörnu dóm um sýninguna eftir Sólveigu Sigurðardóttur þar sem segir m.a.:  „Það er Atli Rafn Sigurðsson sem fer með hlutverk listamannsins Páls. Nálgun Þorleifs og Símonar [Birgissonar, annars höfundar leikgerðar] stillir Páli nálægt áhorfendum, þeir eru gestir hans þetta kvöld, hann er sögumaður og aðalleikari en umfram allt stjórnandi kvöldsins. Hlutverkið er virkilega krefjandi en Atli Rafn skilar því með miklum sóma. Hann nær á magnaðan hátt að halda tengingu við áhorfendur en jafnframt að túlka þann mikla ólgusjó sem bærist innra með persónu hans. Þar birtist snilldarleg leikstjórn Þorleifs og frumlegar aðferðir hans á leiksviðinu.“ Niðurstaða Sólveigar er: „Fullkomin útfærsla á skáldsögunni. Mögnuð leikhúsupplifun þar sem unnið er með mörk heilbrigðis og geðsýki á áhrifamikinn hátt sem lætur engan ósnortinn.“

Silja Aðalsteinsdóttir skrifaði umsögn á vefsíðuna www.tmm.is í gær og er á sama máli og Sólveig: „Sjaldan hef ég á langri leikhúsævi séð leikara „taka salinn“ eins og Atli Rafn Sigurðarson gerði í gær á frumsýningu Engla alheimsins á stóra sviði Þjóðleikhússins. Ekki aðeins ávarpa salinn og gera hann að trúnaðarmanni sínum heldur stjórna honum eins og stórum kór eða sinfóníuhljómsveit. Enda „átti“ Atli Rafn sviðið alla sýninguna út í gegn í hlutverki Páls Ólafssonar, ríkti yfir því – eins og Páll gerir að sínu leyti í samnefndri sögu Einars Más Guðmundssonar sem hvert mannsbarn þekkir. … náði Atli Rafn að laða áheyrendur inn í sögu Páls og sýna þeim inn í þann stóra heim þjáningar sem Páll býr í og hvernig hann eyðileggur hreinlega allt í kringum sig með ofstopa sínum og sjúklegri sjálfsmaníu. Þetta var gríðarlega áhrifaríkt.“

Það er óhætt að hvetja alla til að sjá þessa heillandi sýningu.

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd