Frakkar fagna Ólafi Gunnarssyni

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins
OlafurGunnarsson2009JPVsvhv

Skáldsaga Ólafs Gunnarssonar, Öxin og jörðin, hefur fengið frábæra dóma í frönskum fjölmiðlum að undanförnu. Bókin, sem hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin árið 2003, kom út hjá hinu virta forlagi Gaia í Frakklandi sem áður hafði gefið út skáldsögu Ólafs, Tröllakirkju.

Gagnrýnandi La Liberté segir Öxina og jörðina frábæra bók sem sé í raun miklu meira en söguleg skáldsaga. Í dómi France Catolique  er því  fagnað að frönskumælandi lesendur fái tækifæri til þess að kynnast Jóni Arasyni, einni mögnuðustu persónu í sögu kristindómsins í Evrópu. Gagnrýnandi blaðsins segir höfundinn í senn næman fyrir göfgi og veikleikum Jóns og bjóði lesandanum fáheyrða og þarfa innsýn inn í veruleika þess einstaka manns. Kollegi hans á Les affiches Moniteur segir söguna óð til sjálfstæðis og frelsis þjóðar, en jafnframt  stórkostlega samfélagslýsingu. Og í Centre national du Livre segir síðan: „Ólafur Gunnarsson dregur upp mynd af Íslandi sveipaða sveitaljóma sem verndandi fósturjörð sem á sama tíma leynir djúpt í brjósti sér ógurlegum dyrum helvítis í hjarta eldfjallsins Heklu!“

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd