Flott frumraun

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins
Björg Magnúsdóttir

Friðrika Benónýsdóttir fjallar um skáldsöguna Ekki þessi týpa eftir Björgu Magnúsdóttur í Fréttablaðinu á laugardag og gerir það afar lofsamlega, ljóst er að hún hefur skemmt sér gríðarlega vel við lesturinn.  Friðrika byrjar á að fjalla um tenginguna við Sex and the City og Girls og segir Björgu fara bil beggja en að í bókinni séu þó íslensk sérkenni: „en aðallega þó alveg hellingur af íslenskum hallærisgangi, sveittum barferðum, neyðarlegum uppákomum og endalausri vináttu.“ Friðrika segir bókina vera „flotta frumraun“ og er ánægð með það hvernig Björg hefur leikið sér með klisjur í verkinu sem greinilega hefur kitlað hláturtaugarnar: „[höfundur] leikur sér með klisjurnar fram og til baka þannig að lesandinn engist á köflum um af hlátri.“ Hún kemur einnig inn á trúverðugleika verksins: „Sagan er sannferðug og drepfyndin lýsing á baráttunni við að fóta sig í hinni glerhálu og viðsjárverðu fullorðinsveröld, baráttu sem virðist furðu lítið breytast frá kynslóð til kynslóðar.“ Þetta kemur ekki á óvart því Björg hefur einmitt sagt frá því í viðtölum hvernig margt af því sem gerist í verkinu sé byggt á sönnum atburðum. Friðrika gleðst svo yfir því að það virðist sem svo að Björg eigi eftir að skrifa fleiri sögur um þessar vinkonur og segir niðurstöðuna vera: „Hressileg og drepfyndin skvísusaga. Velheppnuð blanda af SATC og Girls með dassi af alíslenskum hallærisgangi.“

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd