Fimm stjörnu ævisaga

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins
Jón Yngvi Jóhannsson

Landnám, ævisaga Gunnars Gunnarssonar eftir Jón Yngva Jóhannsson, hefur fengið gríðarlega góða dóma og nú síðast fimm stjörnu dóm í Fréttablaðinu. Í dómnum er talað vel um vinnubrögð Jóns Yngva og þá sérstaklega hve vel hann nýtir sér ógrynni heimilda til að kafa í sálarlíf skáldsins ásamt skrifum annarra til að draga upp greinagóða mynd af Gunnari en er þó óhræddur við að andmæla þeim fræðimönnum sem áður hafa skrifað um hann.

Gagnrýnandi er hrifinn af afrakstri þessarar rannsóknarvinnu og segir að greiningin á Gunnari sé „bráðskörp og á köflum er engu líkara en Jón Yngvi sé að skrifa um náinn ættingja sinn eða góðan vin, þar sem hann tíundar bæði galla Gunnars og kosti. Tónninn í þessum skrifum er kumpánlegur og oft launfyndinn…”

Niðurstaðan í dómnum er skýr: „Stórmerkileg ævisaga, samin af heiðarleika og djúpri sannleiksþrá.“

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd