Það kannast margir við gleðisprengjuna og grallarann mikla Fíusól! Margir kættust þegar fréttist af nýrri leiksýningu Þjóðleikhússins um þá ágætu snót og var uppselt á 50 sýningar þar í vor. En nú er Fíasól snúin aftur á fjalirnar, tvíefld og ofurkát. Við hvetjum fólk til þess að tryggja sér miða í tíma því það er óðum að fyllast á sýningar haustsins. Í tilefni af sýningunni kom líka út splunkuný ævintýrabók um Fíu og félaga, Fíasól og litla ljónaránið. Það er kjörinn undirbúningur fyrir skemmtilega leikhúsferð.
Fíasól snýr aftur!
- Höfundur: Ritstjórn Forlagsins





