Ferðadagur fjölskyldunnar

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins
Ferðadagur fjölskyldunnar

Laugardaginn, 2. júní, býður Forlagið upp á ferðaveislu í Bókabúð Forlagsins á Fiskislóð 39. Þá verður Ferðadagur fjölskyldunnar haldinn hátíðlegur með pompi og prakt.

Grillilmurinn mun svífa yfir Fiskislóðinni þegar grillmeistari Forlagsins kyndir upp í kolunum og býður gestum og gangandi upp á ljómandi grillpylsur. Með tómatsósu út á kinn geta börnin síðan skellt sér í hoppukastala og fengið góða útrás þar. Einnig kemur strumpur á svæðið og heilsar upp á gesti. Maxímús Músíkús, músin tónelska, ætlar líka að sýna krökkunum allt sem hann hefur lært um ballett.

Á meðan krakkarnir skemmta sér getur fullorðna fólkið skoðað frábært úrval ferðahandbóka í Bókabúð Forlagsins sem verða á sérstöku ferðatilboði. Hvort sem stefnan er tekin á fjallgöngur, lautartúra, hringferð um landið eða kúra í sumarbústað er fullvíst að þú finnur bók við hæfi. Nýútgefin Ferðaatlas Máls og menningar verður einnig á kynningartilboði þennan eina dag.

Í Bókabúð Forlagsins á Fiskislóð er einnig stærsta kortadeild landsins með öllum mögulegum útgáfum af kortum í alls kyns stærðum og gerðum. Kortasérfræðingarnir Örn Sigurðsson og Hans H. Hansen verða á staðnum til skrafs og ráðagerða. Þú ættir svo sannarlega ekki að týnast í sumarfríinu þínu.

Komdu þér í rétta gírinn fyrir ferðalög sumarsins á Ferðadegi fjölskyldunnar á laugardaginn í blíðu og grillstuði.

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd