Er skáldskapurinn sendiherra vonarinnar?

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins
Einar Már

Út er komin ný bók eftir rithöfundinn og samfélagsrýnirinn Einar Má Guðmundsson. Bókin Bankastræti núll ber undirtitilinn „sögur úr veruleikanum“ en þar skrifar Einar Már vítt og breitt um samband þjóðlífsins og menningarinnar. Íslenskur veruleiki er orðinn lygilegri en nokkur skáldskapur og því fléttar höfundur hér saman sögum og hugleiðingum sem setja samtíma okkar í þarft og óvænt samhengi.

Eða eins og segir í bókinni: „Kannski er skáldskapurinn andspyrnuhreyfing hins mannlega, kannski sendiherra vonarinnar. Í þúsundir ára hefur maðurinn fært stór og smá atvik úr lífinu í kringum sig í búning orða: þróað frásagnarlist sem þrátt fyrir háan aldur minnir meira á ungling í blóma lífsins en hruman jötun. Því má slá föstu að þorsti mannanna í sögur sé óslökkvandi og að sú tilhneiging „að segja frá stórmælum sem orðið hafa í veröldinni sé ekki tíska heldur mannkyninu ásköpuð“, einsog Halldór Laxness orðar það í Persónulegum minnisgreinum um skáldsögur og leikrit. Í frásagnarlistinni varðveitir mannkynið minningu sína, breytir atburðum í ævintýr og staðreyndum í sögu. Þannig er aldurinn, fortíðin og hið liðna ávallt með okkur, liggur undir koju í káetu heimsins og læðist hjá tollvörðum tímans.“

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd