Ný ljóðabók eftir Anton Helga

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins
Ljóð af ættarmóti

Von er á nýrri ljóðabók í vikunni eftir Anton Helga Jónsson. Bókin sú ber titilinn Ljóð af ættarmóti og er formlegur útgáfudagur á morgun, miðvikudaginn 15.  september. Í bókinni heyrast raddir fólks sem bæði fagnar og gleðst, sem harmar og skammast, áfellist aðra eða engist af samviskubiti. Við hvetjum ljóðaunnendur til þess að kíkja inn á síðuna anton.is og fá þar forsmekkinn af því sem koma skal.

Þeim sem vilja fá áritað eintak af bókinni er bent á senda pöntun á netfangið forlagid@forlagid.is fyrir 30. september. Þeir kaupendur fá bókina á Forlagsverði og bókina senda heim að dyrum.

Haldið verður upp á útkomu bókarinnar í Eymundsson við Skólavörðustíg 11 næstkomandi fimmtudag, kl. 17. Þar mun Anton lesa upp og segja frá tilurð bókarinnar auk þess sem boðið verður upp á léttar veitingar. Verið velkomin!

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd