Hannah Kent á Rosenberg í kvöld

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins
Hanna Kent, mynd: Spessi

Rithöfundurinn Hannah Kent verður gestur á baðstofukvöldi Forlagsins á Rosenberg í kvöld, mánudagskvöldið 15. september. Hannah er höfundur metsölubókarinnar Náðarstund (e. Burial Rites) sem er nýkomin út á íslensku í þýðingu Jóns St. Kristjánssonar. Hannah Kent var 17 ára skiptinemi í Skagafirði þegar hún heyrði söguna um Agnesi Magnúsdóttur, Natan Ketilsson og síðustu aftökuna á Íslandi. Í bók sinni dregur Hannah upp ótrúlega mynd af íslenskum veruleika, harðri lífsbaráttu, heitum tilfinningum og hörmulegum örlögum. Náðarstund er fyrsta skáldsaga hennar og hefur farið sannkallaða sigurför um heiminn og hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga, þar á meðal Áströlsku bókmenntaverðlaunin.

Komið og hittið þessa mögnuðu ungu konu sem breytt hefur sýn okkar á eitt alræmdasta sakamál Íslandssögunnar.
Dagskráin hefst kl. 20, fyrstu 50 gestirnir fá frían drykk og þeir fyrstu 10 fá eintak af bókinni.


„Ótrúleg bók sem ég sat límdur við. Ungur ástralskur höfundur dýfir sér í jökulkalt sagnadjúp okkar og kemur úr kafi með skáldsögusem er svo trúverðug að manni finnst hún helst vera samtímalýsing frá 1830. Vatnsdalurinn verður aldrei samur.“
Hallgrímur Helgason

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd