Einar Már tekur við Bjørnson-verðlaununum

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins
Björnson verðlaunin

Rithöfundurinn Einar Már Guðmundsson veitti heiðursverðlaunum sem kennd eru við  Bjørnstjerne Bjørnson viðtöku á dögunum við hátíðlega athöfn í Noregi . Einar Már var heiðraður ásamt Slóvenanum Milan Richter fyrir framlag sitt til þjóðlífs og menningar og ekki síst skelegga framkomu sína á ritvellinum í kjölfar efnahagshrunsins hér heima. Í rökstuðningi akademíunnar kom meðal annars fram að Einar væri meðal fremstu rithöfunda Norðurlanda, alvarlegur og nútímalegur höfundur með skínandi góðan húmor.

Talsverð umfjöllun var um verðlaunin í norskum fjölmiðlum og ræddi Einar til að mynda við fréttastofuna NTB um þann litla hóp fjármálafimleikamanna sem skaðað hefur svo mjög fjölskyldur og launafólk á Íslandi og þau reikningsskil sem óhjákvæmilega eru framundan. Í viðtalinu kom einnig fram sú skoðun Einars að almenningur á Íslandi verði að sýna áhuga og gera skýrar kröfur ef þjóðin á einhvern tíma að komast úr þeim ófærum sem peningabarónarnir hafa leitt hana út í. Í dag hafi ríkisstjórnin vilja til þess en ekki nægilegt athafnarými til að koma skútunni aftur á réttan kjöl.

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd