Einar Kárason í fréttunum

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins
Einar Kárason

Hinn ástsæli rithöfundur Einar Kárason kemur víða við þessa dagana. Eins og fram hefur komið á vefsíðu Forlagsins frumsýnir hann annaðkvöld, 12. janúar, einleik í Landnámssetrinu í Borgarnesi um Sturlu Þórðarson. Á næstunni hefst líka námskeið hans um Njálu og tilurð hennar hjá Endurmenntunarstofnun Háskóla Íslands og í kvöld, 11. janúar, frumsýnir Leikdeild UMF Skallagríms í Borgarnesi leikritið Nanna systir eftir Einar og Kjartan Ragnarsson. Þetta er gamanleikur sem á mikið erindi við samfélagið í dag, að mati leikstjórans, Rúnars Guðbrandssonar.

Einar lauk á síðasta ári við rómaðan þríleik sinn um atburði Sturlungaaldar með sögunni Skáld þar sem Sturla Þórðarson sagnaritari, bróðursonur Snorra Sturlusonar, er í aðalhlutverki. Það má því segja að hann hafi verið á kafi í þessum blóðuga kafla Íslandssögunnar í meira en áratug því fyrsta bókin í þríleiknum, Óvinafagnaður, kom út árið 2001. Og Einar er greinilega ekki kominn upp úr honum enn.

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd