Ef þú vilt slá í gegn

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins

Skáldsagan Ef þú vilt eftir hina dönsku Helle Helle hefur sannarlega vakið athygli undanfarna daga en um hana hafa birst einstaklega jákvæðir dómar í bæði Fréttablaðinu og Morgunblaðinu.

Helle Helle var gestur á Bókmenntahátíð í fyrra en Ef þú vilt var tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs það ár. Silja Aðalsteinsdóttir þýddi bókina en þetta er fyrsta bók höfundar sem kemur út á íslensku.

Í dómi Fréttablaðsins gefur Magnús Guðmundsson bókinni fullt hús stiga, fimm stjörnur, og segir í niðurlagi: „Einföld bók sem lætur lítið yfir sér en er í raun hlaðin merkingu og dásamlegum vangaveltum um líf okkar, sambönd og einmanaleika.“ Auk þess segir hann Helle Helle skrifa „næman, stílhreinan og fallegan texta uppfullan af dönskum húmor eins og hann gerist bestur og tekst á við hluti sem við flest þekkjum úr okkar daglegu lífi. En á sama tíma gera bækur hennar kröfu til lesandans um að lesa af næmni og jafnvel áfergju og draga fram allt það sem undir liggur. Allt það sem er í lífi sem virðist slétt og fellt en er allt annað og meira.“

Í Morgunblaðinu gefur Anna Lilja Þórisdóttir bókinni fjóra og hálfa stjörnu:  „[Helle Helle] er afburða prósahöfundur, textinn er lágstemmdur, mínímalískur og hrífandi og skilar sér einkar vel á íslensku í afburðaþýðingu Silju Aðalsteinsdóttur. Bókin er eiginlega allt of fljótlesin og í bókarlok situr eftir löngun til að fá að vita meira, hvað skyldi gerast næst?“.

Það er því óhætt að mæla með Ef þú vilt, bók sem lætur lítið yfir sér í fyrstu en hreyfir á einstakan hátt við lesandanum.

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd