Spennusagan Barnið í ferðatöskunni hefur vakið verðskuldaða athygli. Þessi óvenjulega saga fékk dúndurgóðan dóm í Morgunblaðinu um helgina en þar sagði rýnir hana „eðalreyfara til að gleypa í einum bita“. „Ég gat ekki lagt bókina frá mér og mun hiklaust mæla með henni,“ skrifar Ingveldur Geirsdóttir og bætir við „sagan [er] vel uppbyggð; hröð og trúverðug og persónusköpun góð…“. Bókin er uppseld á lager Forlagsins en önnur prentun hennar er væntanleg innan skamms!
Eðalkrimmi uppseldur á lager
- Höfundur: Ritstjórn Forlagsins





