Draugamynd í bígerð

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins

Kvikmyndafyrirtækið Pegasus tryggði sér í vikunni kvikmyndaréttinn á Garðinum, dularfullri draugasögu Gerðar Kristnýjar sem kom út hjá Máli og menningu árið 2008. Bókin er ætluð lesendum frá 11 ára aldri en hún var valin besta barnabók ársins 2008 af bóksölum og er tilnefnd til Vestnorrænu barna- og unglingabókaverðlaunanna  árið 2010. Reynir Lyngdal mun leikstýra myndinni en vinna við handrit hennar hefst innan tíðar.

Sagan greinir frá stúlkunni Eyju sem er nýflutt í annað hverfi. Henni bregður þegar hún lítur út um gluggann á nýju íbúðinni því hinum megin við götuna breiðir gríðarmikill kirkjugarður úr sér, fullur af legsteinum og krossum. Þvílíkir nágrannar! Þó verður ástandið fyrst svart þegar pabbi hennar kaupir brúna leðurstólinn í antíkbúðinni niðri í bæ. Foreldrum hennar finnst hann algert æði en Eyja finnur strax að stólnum fylgir eitthvað sem er óvelkomið inn á heimilið – eitthvað vont. Í nýja skólanum kynnist Eyja skemmtilegum stelpum en allra bestur er Sölvi – strákurinn sem er kannski vinur og kannski kærasti og kannski í 10. bekk.

Þess má geta að þýskir útgefendur slógust um þarlendan útgáfurétt á bókinni og stóð sú rimma í marga daga – hnossið hneppti Berlin Verlag og kemur Der Garten því út á þeirra vegum. Bókin hefur aukinheldur verið seld til Noregs.

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd