
Ljóðabókin Drápa eftir Gerði Kristnýju, sem hlaut einróma lof jafnt gagnrýnenda og lesenda fyrir jólin 2014, kom út í Noregi á árinu. Þar í landi hefur hún nú ratað á árslista eins þekktasta gagnrýnenda Norðmanna, Henning Howlid Wærp. Á listanum tekur hann til bestu bækur ársins en það vekur athygli að allar eru þær ljóðabækur. Um Drápu segir Wærp m.a. „Gerður Kristný er meðal þeirra fremstu í nýrri bylgju íslenskra bókmennta … Drápa er óhugnanleg en heillandi …“
Ferill Gerðar er ansi fjölbreyttur en í haust sendi hún frá sér nýja skáldsögu fyrir fullorðna, Hestvík. Bókinni hefur verið afar vel tekið en hún er uppseld hjá útgefanda og endurprentun væntanleg í hús á næstu dögum.





