Dísusaga slær í gegn

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins
Vígdís Grímsdóttir

Gagnrýnendur Kiljunnar voru yfir sig hrifnir af nýrri bók Vigdísar Grímsdóttur, Dísusögu, í gærkvöldi. Dísusaga er skálduð ævisaga Vigdísar en í henni lýsir hún ofbeldi sem hún varð fyrir í æsku og hvernig atvikið hafi klofið sig í tvennt, í Dísu og Gríms. Líf Vigdísar, og sér í lagi skáldaferill hennar, hefur litast af átökum kvennanna sem búa innra með henni. Dísusaga er því hálfpartin útskýring á fyrri verkum Vigdísar, eins og Egill Helgason sagði í þættinum: „Lykilverk á hennar ferli, og eykur manni skilning á öllu því sem hún var að gera á undan … bráðfyndin líka …  stórmerkilegt hjá henni. Bók sem við mælum óhikað með.“ Soffía Auður Birgisdóttir tók undir með Agli og sagði: „Stórkostleg bók, bók sem fjallar á svo ekta hátt um tilfinningalíf höfunda.“

Þó efnið hljómi e.t.v. þungt er léttur tónn í verkinu og ýmsir sagt þetta vera aðgengilegasta verk Vigdísar. Sigurður Valgeirsson segir: „Rokna kaflar, stíllega í þessari bók … Ég komst við við lesturinn, ég hló … Hún tekst á við sjálfa sig, þetta er bók sem skiptir máli.“

Dísusaga er áhrifamikil bók sem unnendur íslenskra bókmennta mega ekki láta fram hjá sér fara.

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd