Dauði trúðsins vinsæll í Frans

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins

Frakkar eru annálaðir smekkmenn, ekki hvað síst þegar kemur að góðum glæpasögum. Það er því sérlega ánægjulegt hversu mjög þeir hafa hrifist af spennusögu Árna Þórarinssonar, Dauða trúðsins. Bókin, sem kom út í október s.l. undir franska heitinu Le Dresseur d’insectes, hefur nú selst í ríflega 22 þúsund eintökum þar í landi og trónir hátt á vinsældalista glæpasagnanna. Hæst flaug hún í níunda sætið yfir mest seldu spennubækurnar en höfundurinn keppir við ekki minni spámenn enn Dan Brown, Henning Mankell, Camillu Lackberg og Dashiell Hammett  – að ógleymdum Arnaldi Indriðasyni.

Það er ekki að undra að Dauði trúðsins sé vinsæl enda hefur hún fengið frábæra dóma gagnrýnenda í Frakklandi. Skríbent dagblaðsins La Marseillaise skrifaði til að mynda að sagan væri „…harkaleg samfélagsgagnrýni í skarpskyggnri og íronískri umfjöllun“  og kollegi hans á vefsíðunni Bibliosurf.com hrósaði henni í hásert og sagði hana „gott úrræði gegn deyfð og drunga“, en slíkt hlýtur að teljast kærkomið í skammdeginu beggja vegna Atlantsála.

Verið er að þýða nýjustu bók Árna Þórarinssonar, Sjöunda soninn, á frönsku og kemur hún út í Frakklandi síðar á árinu.

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd