Danskir dúndurdómar

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins

Ævisaga Halldórs Guðmundssonar um Nóbelskáldið fær fádæma góðar viðtökur hjá frændum vorum Dönum. Gagnrýnendur dönsku blaðanna ausa hana lofi og strá stjörnum og hjörtum í bland.  

Fyrirsögn dagblaðsins Berlingske Tidende var „Hið bókmenntalega eldfjall“ og fékk bókin þar  fimm stjörnur af sex mögulegum hjá gagnrýnandanum Per Krogh Hansen: „Halldór Guðmundsson er vel skrifandi. Rithátturinn er svalur og raunsær, staðgóður og vel studdur heimildum.“ Í Politiken skrifar May Schack að ævisagan sé „einstaklega vandlega unnin og vel skrifuð“ og gefur henni fimm hjörtu af sex. Kollegi hennar á Jótlandspóstinum hrósar nákvæmni höfundarins og þeirri minnistæðu mynd sem hann dregur upp af viðfangsefni sínu.  Þar rignir líka fimm stjörnum af sex. Dorris Ottesen skrifar fyrir Kristilega dagblaðið og segir bókina mikilvægt norrænt menningarframlag:  „Þetta er bæði afar vel skrifuð, sérlega skipulag og mjög grípandi bók um fyrirbærið Halldór Laxness.“ En landi hennar Torben Wendelboe sem miðlar upplýsingum fyrir dönsku bókasöfnin lýsir því  yfir að hér sé komið „aðdáunarvert og heillandi lykilverk um einn af minnisstæðustu fulltrúum heimsbókmenntanna…“  

Útgefandi bókarinnar í Danmörku er forlagið Vandkunsten. 

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd