Dagur Hjartarson tilnefndur til Bókmenntaverðlauna Evrópusambandsins

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins
Sidasta astarjatningin

Skáldsagan Síðasta ástarjátningin eftir Dag Hjartarson hefur verið tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Evrópusambandsins. Markmið verðlaunanna er að beina sviðsljósinu að frjóu bókmenntalífi Evrópu og stuðla að útbreiðslu skáldverkanna sem tilnefnd eru. Verðlaunin eru ætluð nýjum höfundum en þann 23. maí verður tilkynnt um vinningshafa frá 12 löndum

Síðasta ástarjátningin kom út á vordögum 2016 og hlaut stórgóðar móttökur gagnrýnenda, m.a. fjögurra stjörnu dóm í Fréttablaðinu þar sem segir: „Síðasta ástarjátningin er fallega skrifuð bók, full af pælingum, þunglyndi, fyndni, ljóðbrotum og ást.“

Dagur hefur áður gefið út smásagnasafnið Eldhafið yfir okkur, bréfasafnið Sjálfsmorðstíðni í Finnlandi og ljóðabókina Þar sem vindarnir hvílast og fleiri einlæg ljóð en hún hlaut verðlaun Tómasar Guðmundssonar.

Hér má finna frekari upplýsingar um verðlaunin.

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd