
Í mörgum vatnsdeigs- og gerbolluuppskriftum er svolítill sykur en hann er alveg óþarfur og ég hef sleppt honum í mörg ár. Hér eru bollurnar fylltar með jarðarberjarjóma en það mætti líka setja á þær sykurlausa sultu og svo rjóma, eða rjóma blandaðan með ferskum berjum. Svo mætti t.d. setja súkkulaðimauk eða súkkulaðiídýfu ofan á bollurnar (sjá fleiri uppskriftir í bókinni).
12-16 BOLLUR
250 ml vatn
75 g smjör
svolítið salt
125 g hveiti
3−4 egg
BERJARJÓMI
80 ml sykurlaus berjasulta
100 g frosin ber
2 msk vatn
250 ml rjómi
Hitaðu ofninn í 190°C. Settu vatn, smjör og salt í pott, hitaðu að suðu og hrærðu með sleif þar til smjörið er bráðið. Taktu þá pottinn af hitanum, settu hveitið út í og hrærðu vel þar til deigið er kekkjalaust og losnar frá börmum pottsins. Láttu rjúka úr deiginu í fáeinar mínútur en settu svo eggin út í, eitt í senn, og hrærðu mjög vel á milli. Einnig má setja deigið í hrærivél.
Ef eggin eru stór er ekki víst að nota þurfi nema 3−3½ egg; deigið á að vera alveg slétt og kekkjalaust og halda vel lagi.
Settu bollur með matskeið eða sprautaðu þeim úr sprautupoka á pappírsklædda bökunarplötu og hafðu gott bil á milli.
Bakaðu bollurnar í miðjum ofni í um 25 mínútur, eða þar til þær eru gullinbrúnar og prufubolla sem tekin er út byrjar ekki samstundis að falla. Láttu þær kólna á grind.
Settu sultu, ber og vatn í lítinn pott, hitaðu rólega og láttu malla þar til berin eru farin í mauk. Kældu vel. Stífþeyttu svo rjómann og blandaðu köldu berjamaukinu gætilega saman við. Skerðu bollurnar í sundur og fylltu þær með berjarjómanum.
Verði þér að góðu!





