Bókamessa í borginni

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins

Það verður hátíð í bæ um helgina þegar árleg bókamessa og sérleg uppskeruhátíð bókafólks fer fram í ráðhúsinu við Tjörnina.  Dagana 23.-24. nóvember 2013 verður Bókamessa í Bókmenntaborg haldin í þriðja sinn. Messan verður sem fyrr í Ráðhúsi Reykjavíkur þar sem útgefendur sýna nýjar bækur og boðið verður upp á fjölbreytta bókmenntadagskrá. Húsið verður opið frá kl. 12:00 – 18:00 báða dagana.

Við hjá Forlaginu tökum fullan þátt í gleðinni! Höfundar munu fjölmenna, það verður spilaður fúsbolti, Vísinda-Villi ræðir heima og geima, Skoppa og Skrítla ætla að brosa sínu blíðasta, það verður prjónað og smakkað og spjallað og byggt úr Legó. Svo eitthvað sé nefnt! Einnig hvetjum við alla til þess að nýta tækifærið og senda uppáhaldshöfundinum sínum kveðju, koma við á básnum okkar og skrifa jólakveðju á kort sem við komum svo til skila. 

Smelltu hér til að kíkja á dagskrána í heild sinni.


Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd