Bókakonfekt Forlagsins 2017

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins
Bókakonfekt

Verið velkomin á Kaffi Laugalæk, Laugalæk 74a, næstu fjögur miðvikudagskvöld þar sem árlegt Bókakonfekt Forlagsins fer fram!

Upplestrarkvöldin hefjast kl. 20 og eru fyrir löngu orðin fastur liður í vetrardagskrá bókaáhugafólks – þar myndast notalegt og hátíðlegt andrúmsloft

Bækur höfunda eru seldar á staðnum og eins og áður hafa höfundar verið liðlegir við að árita ef þess er óskað.

Fyrstu 30 gestirnir hvert kvöld fá afhenta drykkjarmiða sem hægt er að nýta á barnum.

Nýju gestgjafarnir okkar á Kaffi Laugalæk ætla að vera með tilboð á mat áður en upplesturinn hefst og við hvetjum sem flesta til að koma og smakka!

Sjáumst á miðvikudögum í nóvember!

Dagskráin:

22. nóv.
Sævar Helgi Bragason
Kristín Steins
Gísli Pálsson
Gunnar Theodór Eggertsson
Guðmundur Magnússon
Páll Valsson

29. nóv.
Jón Gnarr
Einar Már Guðmundsson
Gerður Kristný
Ævar Þór Benediktsson
Þorgrímur Þráinsson
Gunnar Helgason
Dagur Hjartarson
Kristín Eiríksdóttir

– – –

8. nóv. lásu 
Valur Gunnarsson
Vilborg Davíðsdóttir
Ármann Jakobsson
Hallgrímur Helgason
Kristín Ómarsdóttir
Silja Aðalsteinsdóttir
Bjarni Harðarson

15. nóv. lásu
Bubbi Morthens
Elísa Jóhannsdóttir
Þórarinn Leifsson
Halldór Armand
Lilja Sigurðardóttir
Kristín Helga Gunnarsdóttir

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd