Bókaþjóðin styður fólkið á Haítí

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins

Fjögur íslensk bókaforlög hafa í samvinnu við Eymundsson ákveðið að gefa andvirði að sölu sjö nýrra bóka til stuðnings íslensku alþjóðabjörgunarsveitinni sem starfað hefur á Haítí síðustu daga. Söluverðmætið verður um 4,5 milljónir króna sem ætlað er til endurnýjunar á búnaði sem sveitin skildi eftir á eyjunni til aðstoðar hjálparsveitum á svæðinu. Um er að ræða bækur sem teljast til stórvirkja í íslenskri bókaútgáfu og verða þær seldar í Eymundsson um allt land nú um helgina. Sá viðburður markar upphaf átaks sem nefnist „Bókaþjóðin styður fólkið á Haítí“.  Jafnframt hefur Eymundsson ákveðið að bæta við söfnunarupphæðina 10% af söluandvirði allra barnabóka í verslunum sínum þessa daga. Útgáfufélögin eru Forlagið, Bjartur & Veröld, Opna og Uppheimar.

Íslenska utanríkisráðuneytið hefur ákveðið að greiða fimm milljónir fyrir þann búnað sem alþjóðabjörgunarsveitin skildi eftir en markmiðið er að bókaþjóðin bjargi því sem upp á vantar. Félagar úr sveitinni hleypa átakinu af stokkunum í Eymundsson í Austurstræti kl. 14 á morgun, föstudag.

Stórvirkin sem um ræðir eru Sagan og Ísland í aldanna rás 1700-1799 frá Forlaginu, Ásgerður Búadóttir – Veftir og Elías B. Halldórsson frá Uppheimum, Myndlist í þrjátíu þúsund ár og Jöklar á Íslandi frá Opnu og Svavar Guðnason frá Bjarti & Veröld en tvö síðast nefndu verkin eru tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna sem veitt verða nú í febrúar.

Jafnframt hyggst Félag íslenskra bókaútgefenda á næstu vikum standa fyrir fleiri verkefnum af þessu tagi til stuðnings björgunarstarfi á Haítí. Félagið hefur enn fremur vakið athygli Evrópusamtaka bókaútgefenda á þessu framtaki og hvatt systurfélög sín til að leggja þessu brýna málefni lið.

Aukin þekking og bætt menntun verður lykilatriði í framtíðaruppbyggingu á Haítí. Þar munu bækur gegna veigamiklu hlutverki. Íslenskar bækur gagnast vitaskuld ekki beint í þessu skyni, en með því að breyta þeim í fjármuni með hjálp íslenskra bókaunnenda öðlast þær vængi og leggja þurfandi lið. Það er von þeirra sem að verkefninu standa að bókaþjóðin taki framtakinu vel – eignist kjörgripi en leggi jafnframt sitt af mörkum við uppbyggingu á hamfarasvæðunum.

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd