Bloggið hennar Vilborgar

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins

Fjölmiðlar hafa undanfarna daga fjallað mikið um skrif Vilborgar Davíðsdóttur rithöfundar á netinu um alvarleg veikindi eiginmanns síns, Björgvins Ingimarssonar, enda eru þau svo opinská og einlæg að þau brjóta blað í opinberri umfjöllun um þetta efni.

Flestir forðast að ræða um dauðann og Vilborg ræðir til dæmis um þá hræðilegu hlið á að missa ástvin að margir vinir og kunningjar hætta að hafa samband af því þeim finnst svo óþægilegt að tala um hinn látna. „Jafnvel getur óttinn við að segja óviljandi eitthvað ,,óviðeigandi” og særa aðra getur orðið til þess að hinn látni er sjaldan eða aldrei nefndur á nafn að erfidrykkjunni lokinni, næstum eins og hann hafi ekki verið til. Og það held ég að sé sárast af öllu.“ En Vilborg á gott ráð handa okkur öllum: „Við getum ekki ráðið því hvenær dauðinn sækir okkur heim. En við getum ráðið því hvernig við bregðumst við komu hans, hvort sem það erum við sjálf sem finnum hann nálgast eða ástvinir okkar. Sorgin yfir aðskilnaðinum við ástvin er þung og þau sem standa í kring fyllast vanmætti yfir því að geta ekki breytt því sem er óumflýjanlegt.

Raunin er sú samt sem áður að við búum öll yfir mætti kærleikans og hann getum við notað til þess að hjálpa þeim sem syrgja. Tölum um þau sem eru farin, hvað gerðist, hvernig þau lifðu og hvernig þau dóu. Látum þau þannig lifa áfram í minningu okkar og hjarta þótt þau hafi siglt á braut.“ Í viðtali við DV viðurkennir Vilborg að hún sé dálítið undrandi því hversu sterk viðbrögð bloggið hennar hefur vakið. „Hún telur það merki um að mörgum finnist, líkt og henni sjálfri, rétt og gott að tala um dauðann, hinn óumflýjanlega endi sem bíði okkar allra.“ Slóðin að bloggi Vilborgar er þessi: http://vilborgd.blogspot.com/2013/02/i-hverfulleika-lifsins-er-gildi-ess-fali.html

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd