Blóðhófnir kemur út í Danmörku

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins
Gerdur

Danska forlagið Vandkunsten hefur tryggt sér útgáfuréttinn á rómaðri ljóðabók Gerðar Kristnýjar, Blóðhófni, sem hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin í flokki skáldverka árið 2010.  Sjaldgæft er að íslenskar ljóðabækur komi út hjá erlendum forlögum en Vandkunsten er afar virt í útgáfuheiminum og gefur m.a. út Dylan Thomas, Franz Kafka og Vladimir Nabokof.

En þó er ekki allt talið því forlagið hyggst einnig gefa út geysivinsæla barnabók Gerðar, Garðinn, sem bóksalar völdu bestu barnabók ársins 2008 auk þess sem Garðurinn hlaut Vest-Norrænu barnabókaverðlaunin árið 2010. Garðurinn hefur þegar verið seldur til Noregs og Þýskalands, þar sem áhuginn var svo mikill að efna þurfti til uppboðs og stórfyrirtækið Bloomsbury hreppti hnossið að lokum. Auk þess hefur Pegasus tryggt sér kvikmyndarétt bókarinar.

Báðar bækurnar munu koma út hjá Vandkunsten í haust í þýðingu Eriks Skyum-Nielsen. Gerður er einmitt nýkomin frá Kaupmannahöfn þar sem hún las upp úr þýðingu Eriks á ljóðahátíð þar í borg. Fleiri upplestrar eru fyrirhugaðar hjá Gerði úti í hinum stóra heimi þetta árið, m.a. í Þýskalandi, Noregi, Wales og Kína.

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd