Birgitta Sif átti bestu myndirnar

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins
Dimmalimmverðlaunin 2012


Birgitta Sif Jónsdóttir hlýtur Dimmalimm – íslensku myndskreytiverðlaunin í ár fyrir bók sína Ólíver. Birgitta Sif býr erlendis og tók móðir hennar, Ragnheiður Guðmundsdóttir, við verðlaununum fyrir hennar hönd við hátíðlega athöfn í Gerðubergi í gær, sunnudag.
Dómnefndina skipuðu að þessu sinni Halldór Baldursson, Kalman le Sage de Fontenay og Aðalsteinn Ingólfsson sem rökstuddi val dómnefndarinnar með þessum orðum:
Við erum hingað komin til að gleðjast með höfundi barnabókar sem við teljum vera þá bestu á sýningunni og verðskulda þar með Dimmalimm-verðlaunin fyrir 2012. Þetta er bókin Ólíver eftir Birgittu Sif Jónsdóttur, gefin út af Forlaginu. Útgáfusaga þessarar bókar er óvenjuleg, a.m.k. í íslensku samhengi, því hún er þegar komin út hjá bresku forlagi, Walker Books Ltd. Höfundur texta og mynda, Birgitta Sif, hefur verið við nám og störf í Bretlandi, og bók hennar hefur til að bera ýmsa kosti breskra barnabóka:  sérviskulega persónusköpun, vandaðar vettvangsteikningar, þar sem meira er lagt upp úr ljóðrænum stemmningum en ágengu litrófi, og kímni sem er í senn góðlátleg og fjarstæðukennd. Einföldum boðskap bókarinnar – „maður er manns gaman“ – eða kannski  „sækjast sér um líkir“, er ekki þröngvað upp á lesendur heldur rennur hann smám saman upp fyrir þeim.

Dimmalimmverðlaunin hafa verið veitt árlega frá árinu 2003 og venju samkvæmt má sjá úrval þeirra myndskreytinga sem lagðar eru fram til verðlaunanna á veggjum Gerðubergs á sýningunni Þetta vilja börnin sjá. Að þessu sinni er sérlega vel búið að sýningunni á 2. hæð menningarmiðstöðvarinnar og full ástæða fyrir unga sem aldna að bregða sér í Breiðholtið og skoða myndir og bækur.


Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd