Beitt vopn í baráttu fyrir læsi unglinga

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins
hungurleikar kvikmynd

Spennubókin Hungurleikarnir sem nú situr í toppsæti metsölulista Eymundsson í flokki barna- og unglingabóka fær fjórar stjörnur hjá Páli Baldvini í Fréttatímanum í dag. En eins og Páll Baldvin bendir svo réttilega á í umfjöllun sinni er bókin ekki eingöngu fyrir unglinga heldur ungt fólk á öllum aldri – já og foreldrana líka.

Hungurleikarnir er fyrsta bókin í þríleik og segir Páll Baldvin bókina vera „hugvitsamlega samið verk, sannfærandi í skemmtun og afþreyingu” og bætir því við að þetta sé „saga sem á undir öllum kringumstæðum að vera beitt vopn í baráttu fyrir læsi unglinga á öllum aldrei; afþreying fyrir páskalestur, sumargjöfin í ár, lesefni fyrir alla í fjölskyldunni.”

Hungurleikarnir hafa átt gríðarlegum vinsældum að fagna í Bandaríkjunum og hafa allar bækurnar þrjár setið á metsölulistum þar ytra. Kvikmynd byggð á fyrstu bókinni kemur í kvikmyndahús í lok mars og því um að gera að næla sér í eintak af bókinni áður en skundað verður í bíó.

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd